Menu
Frí heimsending
innanhússhönnun
    • Dýraskinns motta með sjónblekkjandi munstri

      $ 490$ 820

      Einstök, nútímaleg dýraskinns motta með skemmtilegt útlit. Munstur hennar samanstendur af hálfhringjum sem skarta tveim litum hvor sem skipast til helminga, dökkir súkkulaði brúnir eða djúpir, gráir litir í hverjum hálfhring í munstrinu vinstra megin og ljósari litir hægra megin í hvítum og dröppuðum tónum. Litirnir blandast vel saman og hafa ásamt munstrinu sjónblekkjandi áhrif sem lífgar upp á rýmið.

    • Dýraskinns motta með samhverfu munstri

      $ 1,080$ 1,420

      Einstaklega mjúk og nútímaleg dýraskinns motta með skemmtilegu samhverfu munstri mynduðu úr fernings og hrings formum, mottan skartar ljós gráum eða hvítum ferningum yfir sig alla og inní hverjum og einum ferning eru hringir í dekkri litum, meðal annars svörtum, svarbrúnum og brúnum ásamt djúpum gráum tónum inná milli. Mottan er sérstaklega áberandi og gefur heimilinu mjög skemmtilegan karakter.

    • Mjúk kúaskinns motta í gráum litum

      $ 580$ 1,340

      Motta sem hentar í næstum hvaða rými sem er í húsinu, hún lítur sérstaklega vel út á ljósu gólfi. Mottan er í gráum litum í mis dökkum og ljósum tónum, Á annarri hliðinni er hún dökkgrá, næstum svört og dofnar svo yfir í ljósari gráa liti yfir á hina hliðina. Munstrið er úr samliggjandi strimlum úr kúaskinni. Þessi dýraskinns motta…

    • Dýraskinns motta sem minnir á fallegan múrsteinsvegg

      $ 710$ 1,080

      Þessi dýraskinns motta kemur vel út í hvaða herbergi hússins sem er. Hún hefur munstur búið til úr strimlum röðuðum þannig að það minnir helst á fallega lagðan múrsteinsvegg. Mottan kemur í tveim litum: Blöndu af ríkum viðar tónum sem byrja dekkstir á einum enda og dofna svo út í ljósari brúna liti og loks hvíta tóna í miðju, svo…

    • Motta með sérstöku samsíða munstri

      $ 990$ 2,670

      Rosalega falleg, ósvikin kúaskinns motta. Hún skartar samsíða formum sem saumuð hafa verið gaumgæfilega saman og mynda æðislega áberandi útlit, hvert form beinist að miðjunni og blekkir sjónina þannig að munstrið virðist vera á hreyfingu. Þessi einstaklega mjúka dýraskinns motta kemur í sínum náttúrulegu litum sem mynda fallega áferð, litir hennar eru mismunandi tónar af brúnum, gráum, hvítum og svörtum…

    • Kúaskinns motta með lifandi munstri í “Moorish” stíl

      $ 820$ 1,420

      Kúaskinns motta með sveigðum línum sem mynda saman form, falleg “Moorish” hönnun sem kemur frá Saudi-Arabíu. Munstrið lífgar uppá umhverfið og er skemmtileg viðbót á hvaða heimili sem er sem vantar smá uppliftingu. Hvert form í munstrinu er í mismunandi dröppuðum, ljós gráum, dökk gráum og hvítum litartónum. Öll formin í munstrinu á þessari skemmtilegu kúaskinns mottu eru fallega saumuð…

    • Kúaskinns motta með líflegt útlit

      $ 630$ 1,090

      Nútímaleg, sérstök kúaskinns motta sem hefur verið gaumgæfilega saumuð. Hún hentar í hvaða rými hússins sem er, hún er einstaklega mjúk en á sama tíma mjög slitsterk. Mottan skartar Z-laga munstri og er í mörgum gráum, brúnum og dröppuðum litum með svörtum undirtónum, frábær motta sem gefur hvaða herbergi heimilisins sem er fallegan og líflegan svip.

    • Slitsterk kúaskinns motta með skemmtilegu munstri

      $ 820$ 1,080

      Æðislega mjúk kúaskinns motta sem er frábær viðbót í hvaða umhverfi sem er og hentar einnig vel þar sem mikið er um umgang t.d á ganginum eða í forstofunni þar sem hún er úr slitsterku og endingargóðu skinni. Mottan er fáanleg í tveim lita útfærslum: Sú fyrsta er í ljós gráum litum og munstrið er myndað úr dökk gráum útlínum…

    • Dýraskinns motta í gráum springandi litum

      $ 870$ 1,730

      Mjúk og falleg dýraskinns motta í náttúrulegum litum, kemur einstaklega vel út á nútímalegu heimili. Frá neðra vinstra horni mottunnar springur út dökkur grár litur undirstrikaður með kolsvörtum litum hér og þar sem dofnar út yfir ljósan bakgrunn. Mottan er mjög er slitsterk og hentar því vel í rými þar sem mikið er um umgang.

    • Kúaskinns motta með skemmtilegu munstri

      $ 630$ 860

      Þessi æðislega kúaskinns motta skartar fallega saumuðum ferningum í gráum og dröppuðum litum, ofaná þessum gráu og drapplituðu ferningum eru sveigðar línur niður alla mottuna sem liggja nálægt hvorri annarri og mynda næstum hringlaga form. Þessar sveigðu línur eru í fallega dökk brúnum lit. Dýraskinns motta sem er einstaklega mjúk viðkomu og hlýlegt útlit. Hún hentar í rými þar sem…

    • Motta með skemmtilegu þríhyrnings-líku munstri

      $ 710$ 1,080

      Motta með skemmtilegu munstri sem skartar formum í mismunandi litum, fáanleg í þrem litum í ýmsum tónum, sú fyrsta er í dökk brúnum, dröppuðum, svörtum og hvítum litum, önnur er í gráum og dröppuðum litum og loks sú þriðja í blá-gráum, hvítum og dröppuðum litum. Þríhyrningslegt munstur í litum sem hentar í hvaða umhverfi heimilissins sem er jafnvel þrátt fyrir…

    • Gráleit kúaskinns motta með tímalausa hönnun

      $ 490$ 1,080

      Æðisleg tímalaus motta úr kúaskinni sem skartar samsíða, mis-löngum og þunnum strimlum vandlega saumuðum í yfir sig alla sem gerir hönnunina sérstaklega fallega og nútímalega. Þessi frábæra motta er fáanleg í tveim lita útfærslum, sú fyrri er í mismunandi gráum litar tónum með dröppuðum strimlum inn á milli og sú seinni er í dröppuðum tónum með gráum strimlum inná milli.…

    Start typing and press Enter to search

    Shopping Cart

    No products in the cart.

    error: