Mjúk motta í fáguðum stíl
In stock
$ 380 – $ 540
Þessi fallega, einstaklega mjúka motta skartar munstri í fáguðu útliti úr þríhyrningum sem allir eru jafnstórir í mismunandi litum. Litir mottunnar eru dekkstir yst við kantana og lýsast er þeir nálgast miðju. Munstrið byrjar í dökk brúnum lit sem dofnar síðan útí karamellubrúnan og loks í ljósa drappaða og kremaða hvíta liti í miðju. Mottan er í góðum gæðum og er einstaklega mjúk viðkomu.
Material |
---|
Tengdar vörur
Mjúk kúaskinns motta með demantsmunstri
$ 490 – $ 1,080Falleg kúaskinnsmotta búin til úr hágæða skinni sem er mjög slitsterkt og er hún gerð til að þola mikin umgang. Hún skartar fallegu demants munstri og inní hverjum demanti er einstaklega mjúkt, ósvikið kúaskinn sem hefur fengið að halda sinni náttúrulegu áferð og hefur því skemmtilegan karakter. Mottan er í mismunandi brúnum og dröppuðum tónum með ljósum útlínum í munstrinu.
Nútímaleg motta með geometrísku munstri
$ 570 – $ 2,190Kúaskinns motta með geometrísku munstri sem kemur einstaklega vel út á nútíma heimili, svört að lit með fallegum hvítum línum sem saman mynda þríhyrningslegt munstur. Þessi frábæra motta hentar einnig vel þar sem er mikill umgangur því hún er einstaklega slitsterk og þolir mikið án þess að það fari að sjá á henni.
Fallega munstruð mjúk dýraskinns motta
$ 820 – $ 1,080Motta með nákvæmu munstri sem gefur hvaða herbergi hússins sjarma. Hún er í ýmsum gráum, drapplituðum, hvítum og svörtum litartónum. Mottan skartar kassalaga formum með fjórum litlum þríhyrningum hvor inní sér sem snúa inná við. Lítil, svört hringlaga og demantslaga form eru í hverju horni þríhyrninganna sem kemur skemmtilega út með restinni af munstrinu á þessari mjúku hágæða dýraskinns mottu.
Kúaskinnsmotta í fallegum blönduðum litum
$ 490 – $ 1,080Þessi einstaka dýraskinns motta skartar þunnum og löngum endurteknum línum í allskonar litum sem blandast fallega saman. Mottan er til í þrem útfærslum, ljósgrá og hvít með drapplituðum tónum inná milli, önnur dökkbrún og kastaníubrún með hvítum tónum inná milli og að lokum ein í ljósum viðartónum. Litirnir blandast allir einstaklega fallega saman og fellur mottan vel inní hvaða rými…