Minimalísk slitsterk kúaskinnsmotta í náttúrlegum litum
In stock
$ 490 – $ 1,080
Þessi gamaldags kúaskinnsmotta skartar fallegum, skírum línum sem mynda ferninga er saumaðir hafa verið saman, þessi glæsilega motta getur gefið hvaða nútíma heimili skemmtilega viðbót. Minimalísk hönnun unnin úr ósviknu traustu skinni í fallegum náttúrulegum brúnum og blágráum litum, efnið er mjög traust og slitsterkt og þolir því umgang og verður ekki auðveldlega slitin og er þess vegna tilvalin í stofuna, inngangin eða hvaða svæði sem er á heimilinu.
Tengdar vörur
Motta úr kúaskinni með áberandi geometrísku munstri
$ 490 – $ 1,420Einstök hágæða dýraskinns motta sem vekur athygli hvar sem hún er. Búin til úr ósvinku kúaskinni,smekklega línustrikuð og myndar áberandi geometrísku munstur sem gefa hvaða rými sem er mikla dýpt og skemmtilegt útlit sem kallar á athygli. Mottan er svört og hvít að lit og passar við alla aðra liti litapallettunnar og hentar því í hvaða rými sem er.
Slitsterk motta með lóðréttum línum
$ 490 – $ 1,080Slitsterk motta úr skinni fáanleg í tveim útfærslum, sú fyrri byrjar með svörtum, lóðréttum línum með örlitlum gráum og hvítum inná milli og endar með gráleitum hvítum á toppnum. Sú seinni er í blönduðum gráum og hvítum litum sem byrja dökkir og enda ljósir á hinum endanum. Kemur vel út í stofu, borðstofu og einstaklega falleg í herbergi þar sem…
Slitsterk kúaskinnsmotta í náttúrulegum litum
$ 380 – $ 630Kúaskinns motta í náttúrulegum litum sem passar inní hvaða herbergi hússins sem er. Fallegt munstur úr löngum lóðréttum strimlum með láréttum stuttum línum. Þessar línur eru í svörtu, gráum tónum, drapplituðum tónum og hvítum. Þessi fallega motta hentar vel þar sem umgangur er mikill td. á ganginum þar sem hún er mjög slitsterk og endingargóð.
Motta sem minnir á abstract málverk
$ 580 – $ 1,340Þessi einstaka, fallega motta hefur útlit sem minnir helst á abstract málverk. Hún er úr ekta kúaskinni og skartar handahófskenndum línum yfir sig alla í djúpum brúnum, dröppuðum og hvítum litum með vott af svörtum og gráum þynnri línum. Línurnar sjálfar eru saumaðar í viljandi ójafnar sem gefur henni skemmtilegt útlit sem kemur vel út t.d í stofunni eða borðstofunni.